Sveinbjörn
Geirsson

Hugbúnaðarsérfræðingur

TypeScript · PostgreSQL · Cloudflare Workers · Java / Scala · Rust

Rúmur áratugur í smíði fjármálakerfa (kortauppgjör hjá Korta/Rapyd, lífeyriskerfi fyrir 10 sjóði og gagnaskil til Seðlabankans) og nú SaaS-vettvangur, tvinnleit og mállíkanainnviðir á Cloudflare og PostgreSQL. Ég hanna fyrir sýnileg frávik, læt mælingar en ekki ágiskanir ráða för; afraksturinn er kóði sem er læsilegur, sveigjanlegur og hefur svigrúm til að þroskast.

Starfsreynsla

Hugbúnaðarsérfræðingur · Massif Network

Varan heldur utan um tökustaði og myndefni fyrir kvikmyndateymi. Þróunarteymið er tveggja manna: stofnandi/tæknistjóri og ég. Ég mótaði heildarhögun bakenda og innviða.

  • Smíðaði bakvinnslu þar sem verk fara úr biðröð í PostgreSQL (PGMQ) um miðlara til Workers. Hvert verk fær tímabundna úthlutun; renni hún út má úthluta verkinu aftur og fyrra tilkallið getur ekki staðfest afgreiðslu biðraðarverksins (claim fencing). Verk sem mistakast lenda í sýnilegri villubiðröð í stað þess að hverfa.
  • Endurskipulagði prófanir og CI-keyrslu. Í skráðum samanburði með gögnum í skyndiminni styttist keyrslan úr 9m08s í 3m24s.
  • Flutti myndageymslu úr Supabase Storage í Cloudflare R2 með aðgangsstýrðri birtingu og upphleðslu. Sameinaði vef, stjórnborð og Workers í eitt monorepo (pnpm/Turborepo) með samþættingarprófum.
  • Hver viðskiptavinur fær eigin geymslu í R2 og eigin leitarvísi í Meilisearch. Workers sannreyna JWT-undirskriftir frá Supabase með opinberum lyklum (JWKS) og athuga aðgangsheimildir áður en beiðnum er hleypt áfram.
  • Prófaði hvort landupplýsingar úr Overture Maps bættu leitina. A/B-próf með 670 tilvikum sýndi engan marktækan ávinning (p = 0,75); skráði niðurstöðuna og ráðlagði gegn kostnaðarsömum endurreikningi.
  • Setti upp vöktun í Grafana Cloud fyrir forritið, gagnagrunn, leit og Workers (mæligögn, annálar og viðvaranir).
Vinnsluferli bakvinnslu Færsla í PostgreSQL fer í biðröð (PGMQ). Worker-miðlari úthlutar verkinu tímabundið, takmarkar lestur og endurtilraunir og kallar á Workers um þjónustutengingar fyrir lýsigögn, vigurframsetningar, viðgerð leitarvísis og hnitun. Verk sem klára leyfðar endurtilraunir fara í villubiðröð. PostgreSQL færsla stofnuð PGMQ biðröð Worker-miðlari úthlutun · tilrauntakmarkaður lestur Workers lýsigögn · vigrarleitarvísir · hnitun þjónustutengingar tilraunir klárast villubiðröð
  1. PostgreSQLFærsla stofnuð
  2. PGMQBiðröð
  3. Worker-miðlariTímabundin úthlutun · endurtilraunir · takmarkaður lestur

    Þegar endurtilraunir klárast fer verkið í villubiðröð.

  4. WorkersUm þjónustutengingar fyrir lýsigögn, vigurframsetningar, viðgerð leitarvísis og hnitun.
Bakvinnsla hjá Massif: verk úr gagnagrunninum komast til Workers eða lenda í sýnilegri villubiðröð ef vinnslan tekst ekki.

Tækni: Cloudflare Workers / R2 / Wrangler · TypeScript · SvelteKit · PostgreSQL / Supabase · Meilisearch · Voyage AI · Grafana Cloud

Hugbúnaðarsérfræðingur · Reiknistofa Lífeyrissjóða

  • Þróaði og viðhélt hugbúnaðarkerfum lífeyrissjóða á IBM Informix fyrir greiðslur, innheimtu, skilagreinar, lánveitingar, verðbréf og umsóknir um lífeyrisréttindi.
  • Tengdi kjarnakerfi RL við skýrslukerfi Seðlabanka Íslands vegna skila á skuldbindingaskrá fasteignalána; hafði persónulegan aðgang að gagnaskilakerfi Seðlabankans til að sinna skilunum.
  • Annaðist uppsetningu og rekstur á X-Road öryggisþjóni (Straumurinn) fyrir fyrirspurnir frá Tryggingastofnun og Sjúkratryggingum Íslands um hvort sjóðfélagi hefði sótt um réttindi og hvaða réttindi umsóknin varðaði.

Tækni: IBM Informix · SQL · X-Road

Hugbúnaðarsérfræðingur / Forritari · Rapyd Financial Services, áður Korta

Annar forritari Korta, ráðinn beint úr háskóla. Eftir því sem teymum fjölgaði leiðbeindi ég nýjum forriturum og gerði útgáfu hugbúnaðar sjálfvirka.

  • Þróaði daglegan útreikning á kostnaði, veltutryggingu (rolling reserves), endurgreiðslum og færslugjöldum. Stýrði skiptingu greiðslna til söluaðila í gegnum sambankaþjónustur (IOBS/Stórgreiðslukerfi SÍ) og erlendis (SEPA/SWIFT).
  • Samræmdi Visa/Mastercard afstemmingar- og endurkröfugögn við bókhaldslykla félagsins eftir gjaldmiðlum, kostnaðar- og virðisdögum. Útfærði skilyrði fyrir lokun bókhaldsdags og bætti rekjanleika allrar fjármálavinnslu.
  • Byggði DB2-gagnaþjónustur fyrir framendateymi, sjálfvirka gengisinnlestra (Visa/Mastercard/SÍ), færsluflokkun eftir vöruframboði kortafélaga og samþættingu við sérstök gagnaskil flugfélaga.

Tækni: Java · Scala · IBM DB2 · OAuth 2.0

Tækniþekking

Cloudflare
Workers, R2, Wrangler, Hyperdrive, Durable Objects, KV og Secrets Store; þjónustutengingar, þróun og stillingar prófunar- og rekstrarumhverfa og útgáfuferli.
Bakendi og gögn
SaaS-kerfi með aðskilnaði viðskiptavina, TypeScript, PostgreSQL, Supabase, SQL og aðgangsstýring á raðastigi (RLS), OAuth 2.0, auðkenning og aðgangsheimildir.
Innviðir
Docker / Podman, k3s, Terraform, Ansible, GCP og AWS; vöktun með Datadog, Prometheus, Sentry og Grafana / Loki; OpenID Connect; WireGuard / Tailscale.
Önnur reynsla
SvelteKit og Svelte; Java, Scala og IBM-gagnagrunnar í fjármálakerfum; þróunarverkfæri í Go og Rust; Python og MCP; líkanakeyrsla með C++ / SYCL.
Tungumál
Íslenska (móðurmál), enska (reiprennandi).

Valin verkefni

Eigin verkefni: verkfæri fyrir forritara, myndvinnsla og keyrsla mállíkana á eigin vélbúnaði.

spoon

Verkfæri í Go sem finnur afleidd GitHub-kóðasöfn (forks), greinir tengsl þeirra og raðar eftir nýjungum. Opinbert, 356 breytingafærslur.

github.com/Raudbjorn/spoon

SYCL og líkanakeyrsla á Intel Arc

Smíðaði tengingu við líkanakeyrslu sem vaktar líkanaþjón og styður stöðvun beiðna. Viðhélt Intel Arc-útgáfu af llama.cpp með SYCL-kjarnafínstillingu og endurtakanlegum prófum; í skráðri mælingu (PR #35) jókst úttakshraði úr 6,95 í 17,10 tokens/s við 16k samhengi (Mistral-7B Q4_K_M, f16 KV-skyndiminni, Arc A770).

github.com/Raudbjorn/ggml-llama.cpp

Menntun og viðurkenningar

Háskóli Íslands

B.Sc. í tölvunarfræði. Aðstoðarkennari í dæmatímum í grunnnámi á tveimur síðustu árum náms. Starfaði fyrir sprotafyrirtæki í Tæknigarði samhliða námi.

Valin námskeið

DevOps Ansible Automation (Udemy 2023) · The Rust Programming Language (Udemy 2018) · Functional Programming in Scala (Coursera 2016) · Cryptography & Usable Security (Coursera 2015) · Software Security (Coursera 2014).

Tilkynning um öryggisveikleika í kosningakerfi

Fann og tilkynnti CSRF-veikleika sem gerði vefsvæði þriðja aðila kleift að breyta atkvæði innskráðs notanda. Umsjónarmaður staðfesti og lagaði.

github.com/piratar/wasa2il/issues/132

Sigurvegari í forritunarkeppni Rapyd

Hlutskarpasta teymið af yfir 200 þátttakendum frá 6 löndum. Smíðuðum virka frumgerð af greiðsluveski í WhatsApp með Rapyd Wallet og WhatsApp Business API.

github.com/Rapyd-Samples/whatsapp-checkout

Meðmælendur

Tómas Árni Jónsson

Hugbúnaðarsérfræðingur · Deloitte

Samstarf við aðlögun kjarnakerfa RL að gagnaskilakerfi Seðlabanka Íslands, 2023–2024.

Sími: +354 892 6309 · tomasarni@gmail.com

Þráinn Guðbjörnsson

Áhættustjóri · Festa Lífeyrissjóður

Þróun fyrstu kerfa Korta sem annar og þriðji forritari fyrirtækisins, 2013–2017.

Sími: +354 863 8308 · thrainn@gmail.com